Senn koma jólin...
Því jólin er'að koma .... eftir nokkrar vikur ;)
Jæja stúlkur..
Fannst vera kominn tími á eitt stykki nýja færslu hérna hjá okkur. Þórunn getur nú ekki átt afmæli endalaust
..( Þótt hún sé enn að fá gjafir hehehe).
Annars er ég að velta fyrir mér hverjar af ykkur komi vestur í jólafríinu? Ég, Þórunn, Bríet og Unnur erum allavega bókaðar.. En fleiri?
Er ekki málið að hafa smá litlujól, smákökur og tilheyrandi, ekkert endilega bara við heldur sem flestar úr árgangnum.. Það væri stuð .. og auðvitað DJAMM, reynum að plögga stelpudjamm fyrir annan í jólum er þaggi?
Hmm... við verðum líklegast bara 4.. jæja, það eru hvorteðer bara við 4 sem djömmum alminnilega af þessari grúbbu
hohoho..
Annars er lægð yfir landinu, en við skulum ekkert ræða það neitt.. Og sjá bara hvað helgin ber í skauti sér.. já eða okkar! hahah...
Kveð í bili.
-Tinnzz
Dugnaður!
Jæja stúlkur, er ekki kominn tími til að bola þessum gömlu myndum burt enda erum við allar sætari í dag en þá er það ekki 
Við sambýlingarnir á Akureyri höfum sko ekki setið auðum höndum s.l daga, en við tókum okkur til og fórum að byrja á listanum fyrir REUNIOIN-IÐ!!! Daddaradaamm!!! Tókum eina kvöldstund og gúgluðum á milljón og brainstormuðum og erum komin með 70 og eitthvað nöfn á lista! Hvorki meira né minna, finnst það bara helvíti gott hjá okkur!
Eru þið ekki allar geim í reunion á næsta ári annars? Verð fyrir miklum vonbrigðum annars!
Held nefnilega að þetta verði frekar frábært, enda eiginlega bara gott fólk þótt það séu auðvitað alltaf rotin epli í öllum körfum sem skemma fyrir hinum. Eeen nóg um það 
Aðrar fréttir:
Þessi ofurskutla, húsmóðir, stuðbolti og vinkona með meiru



Á VON Á BARNI!!!
Eins og sjá má á heimasíðunni hennar hérna til hliðar.
Til lukku með þetta kæra Guðbjörg, óska þér alls til lukku með þetta f.h okkar allra 
Jæja, held að ég vindi mínu kvæði í kross núna,
þangað til næst,
luvs
Tinna
Golden, oldies?
Stelpur, ég var að gramsa í gömlum myndum á bloggari og fann þessar líka eðal myndir af EÐAL skvísum!!

Sara í góðu glensi

og Unnur líka

Rut skellti sér á ball líka!

og Bríet var í stuðinu!

Tótatjútt að hugsa um næsta fórnarlamb kannski ;)

Mágkonurnar Sif og Dagný hressar á því

og ég lét líka sjá mig.. (eina myndin sem ég fann af mér ekki með e-r strák á arminum!)
Ahh mæli með þessari blast from the past síðu hjá honum Bigga! Algjör tímaþjófur samt gaman að skoða.
Góða helgi vinkonur 
JEY!!! ég komst inn....
Það er nú voða lítið að frétta af mér svo sem....en þar sem ég er alltaf í fríi á fimmtudögum og eftir kl. 8 á mánudögum þá er öllum frjálst að leika við mig á þeim dögum!
En hvað segiði stelpur....bíó á fimmtudaginn?? hvernig lýst ykkur á það???
Við megum ekki láta þessa síðu deyja strax! við erum búnar að vera frekar lélegar að blogga hérna núna!
Halluú
Jæja hér kem ég með gleðifréttir á miðvikudagsmorgni!
Ég eignaðist lítinn frænda í nótt! Örugglega hrikalega sætur (hef ekki enn séð mynd) enda foreldrarnir einstaklega myndarlegir
Ég mun síðan leggja leið mína til Reykjavíkur föstudaginn 14.sept til að kíkja á hann, og kannski fleiri.. kemur allt í ljós ![]()
Svo er ég líka komin með vinnu hérna á AK, á ofursætum hjallastefnu leikskóla rétt fyrir ofan Hólabrautina.. Verð á skilavakt frá 15-17 alla daga.. Bara spennó
Byrja í aðlögun (eins og börnin) á mánudaginn!
Það var míní 85model hittingur hérna á AK um helgina, eins og lesa má um á blogginu mínu, Þórunnar, Unnar og Rutar.. svo það getur varla farið fram hjá ykkur ![]()
Jæja.. kennarinn er farinn að líta mig hornauga enda hef ég varla litið af tölvunni frá því ég mætti í morgun.. heheh, þetta er bara svooo dull fyrirlestur ![]()
Laters!
Akureyri
Fyrsta prófið er á mánudaginn..
Sambúiðin gengur vel, erum alla vega ekki búnar að drepa hvor aðra, eða er það nokkuð Tinna?
Ætla að halda áfram að fylgjast með kennaranum, bara 2 tímar af 4 búnir í dag..
kv. Akureyrarmærin
Sumarið hjá Buggu-lú
Almáttugur hvað maður getur verið latur að blogga! Eins og þetta er nú fín síða hjá okkur.
Sumarið mitt einkenndist á að fara vestur á Ísafjörð í heimsókn til þeirra gömlu. Ég fór þrisvar eða fjórum sinnum á þremur mánuðum, alltaf jafn yndislegt og gaman.
Um helgina fluttum við fjölskyldan um eina götu í stærri íbúð í Bröttukinn í Hafnarfirði og eins og er er ég ekki með netið og get þar af leiðandi ekki bloggað á bloggið mitt, það hefur verið lokað fyrir www.123.is í vinnunni hjá mér (sem ég bara skil ekki)
Annars var sumarið frekar rólegt og engar djúsí sögur af mér að segja.. fór reyndar til Dublin þann 19 apríl með vinnunni og þar var sko DJAMMAð og drukkið öl..
Ég vil því næst óska Tinnu G og Þórunni góðs gengi á Akureyri og auðvitað henni Bríeti minni í Canada!
Til next time! Tútúlúú

