Æ fyrirgefið
Vildi bara láta ykkur vita að bannerinn er kominn!
Kosningar
Loksins ný færsla frá mér. ;) Er í pása frá vinnu í kjörstjórn. Mikið stuð það. Ætlaði bara að henda hérna inn nokkrum línum og minna ykkur á að fara kjósa í dag! Hafið frest til kl 22 í kvöld. Unnur þín er sárt saknað á kjörstað. :) Er einmitt aftur í kjördeild eitt.
Þið fyrir sunnan skemmtið ykkur í paríiinu í kvöld! Væri sko til í að vera með ykkur. Hlakka til að sjá nýja "bannerinn".
kv. tótatjútt
Halló halló
Fyrirgefðu Rut að ég gleymdi að stækka stafinu
Man ennþá lykilorðið...
Frábært ég man ennþá lykilorðið mitt... var farin að hallast að því að það hefði dottið út. Já heilinn er óútreiknalegur. Ákvað að stækka stafina svo ég yrði ekki kölluð æla eða eitthvað af Rut. ![]()
Er núna búin að vera að fara í ræktina/sund með Þórunni í heilan mánuð...frekar stolt bara að gera eitthvað annað að sitja öll kvöld og barasta horfa á sjónvarpið. Ég stjórnast samt ennþá af því... algjörlega. Fékk næstum panic kast áðan þegar það var súper spennandi alveg á 2 stöðum.![]()
Get samt ekki annað en verið stolt af Þórunni að taka áhættuna að fara með mér og hálf neyða mig að gera hlutina. Þrjóskan fer þó að snúast um núna að gera ekki heldur kannski ein ferð í viðbót eða 1. mín. meirr á hlaupabrettunni.. jahh eða 10 magaæfingar. You get my point.
Neyddi samt svo endalaust ekki svo í morgun að ég sendi Þórunni sms og bað hann kurteislega um að fara frekar bara eftir vinnu í dag. Sem betur fer var hún sammála mér enda er ég búin að smita hana af kvefinu sem er farið frá mér reyndar. Verð að sýna samúð... ![]()
Talandi um sjónvarp þá held ég sé að fá magasár af því. Það var bara allt að gerast." One tree hill" kom aftur eftir LANGA bið... hélt meira segja að ég væri komin yfir þetta...jahh nei gleymið því. Aftur háð. Já þátturinn var svo sjúklega spennandi. Svo var það "Supernatural", spennandi og svo lokaþátturinn í "Dexter"
Omg skiluru. Ógeðslegur reyndar en mega spennandi. Andaði bara í auglýsingahléum.
Já svo undankeppnin í Eurovision á morgun... held í fyrsta sinn í langan tíma er ég spennt yfir þessu. Tók mig líka til á laugardaginn og horfði á öll myndböndin. Já já stórskemmtilegt laugardagskvöld. Ég kvarta ekki. Sko ef Ísland kemst ekki áfram núna þá verð ég fyrir vonbrigðum... Æ ég veit ekki. Ætla ekki að fara að koma með dóma enda ganga þeir aldrei upp.
Svo kosningarnar á fullu.... kom í vinnuna í dag og fallegar rauðar rósir í bakaríinu. Ég hef ekki hugmynd hvað ég ætli að kjósa Hoppaði hæð mína með mína 5 í stjórnmálafræði þó Rúnar hafi alls ekki verið sáttur við þessa einkun, þetta þýddi fyrir mér frelsi að útskrifast úr menntaskóla. Litlir hlutir eru líka góðir hlutir ![]()
Gleymið samt ekki í öllum þessum látum eftir kosningarnar og Eurovision að það er mæðradagurinn á sunnudaginn.
Jahh hef ekkert að segja..vildi bara koma með eitthvað til geta alla vegana sagt vera sambloggari hérna.
Skjáumst siðar!!
Samræmduprófin!
Annars ætlaði ég bara aðeins að láta heyra í mér, TAKK FYRIR SÍÐAST.. Væri svo til í að vera með ykkur á júrókvöldinu en verð þess í stað bleeekuð í vinnupartýi hérna heima
Hitti Justin Timberlake á helginni, hann bað voða vel að heilsa ykkur öllum og hlakkar til að skemmta á reunioninu
en jæja.. vinnan kallar! Laters
Jæja stelpur mínar!! Skál!
Jæja best að bæta það aðeins upp! Við stelpurnar enduðum á Red Chilli þarna um daginn og borðuðum alveg dýrindis mat með nokkrum auka tómötum! Þetta verðum við að gera oftar stelpur, hittast rétt eftir útborgunar dag og fá okkur eitthvað gott að borða og plana reunionið og svona.
Svo ætlar Sif hin yndislega að bjóða okkur í mat annaðkvöld, ætla að vara ykkur við að ég mun taka Andra með mér, allir að koma í lélegum fötum sem má rífa og hella gosi og tómatsósu yfir, hann er svo mikill villingur greyið, haha
Við getum nú ekki sleppt því að halda Eurovision partý á laugardaginn! og ætlar Sara að hafa svaka svaka afmælis - Eurovisionpartý..
Heyrðu og núna vil ég að við fáum okkur nýjan banner og þið verðið ALLAR að senda mér mynd af ykkur á bugga05@hotmail.com fyrir klukkan 07:05:25 á laugardaginn 12 maí. Einn tveir og byrja!!
út að etha!!
Góðan daginn allir sambloggarar!!
Já hún Tinna okkar á Ísafirði er að koma suður og vorum við að spá að smala okkur stelpunum út í smá snæðing!! Hvernig líst ykkur á það ?
S.s á miðvikudaginn kl svona 20, er það ekki bara fínt ?
Hvaða stað langar ykkur að fara á ?
Við komum með hugmyndir
t.g.i fridays
Askur
Ruby Tuesday.
Red Chilli
......svo mætti lengi telja ;)
Endilega komið með hugmyndir og skrifið í komment hvert þið viljið fara!!
Og hverjir komast á miðvikudaginn
Ísafjarðarblogg
Fannst annars hálf sad hvað enginn hafið bloggað hérna lengi og ákvað að henda henni færslu inn! Það styttist endalaust í Justin, bara örfáir dagar! Vuhúú fór á youtube í dag og skoðaði nokkur LIVE myndbönd.. Hann er megabeib og þvílíkur preformer!
En jæja já, endilega farið að blogga meira piger!
Túdels!
*geeeysp*
Góða kvöldið....
úff ég held að ég sé að deyja úr þreytu, það var rosalega lítið sofið í Danmörku, ég svaf 3 tíma fyrir brottför og var auðvitað vakandi langt fram á nótt.
Það var ótrúlega gaman í Köben og á árshátíðinni, þó ég hafi misst afa minn meðan ég var úti
![]()
Ég verslaði mér geggjaða Puma skó....og nokkra boli, það var alltof sumt, við fórum í Tívólíið, ég fór í stóra Dæmonen og við fórum öll út að borða á föstudagskvöldinu, á laugardeginum fórum við á Strikið eða STRöööGHEET, og mannmergðin var svakaleg...
Árshátíðin já var geðveik við silgdum þangað á svona strætó bát og drukkum Jarðaberja Daqurrí sem var miklu betra en það sem við gerðum heima hjá Bríeti :) hehe....
Þar var dansað uppá borðum og borðað 4 rétta máltíð og drukkið og haft gaman.
Það versta var að á sunnudögum eru ALLAR BÚÐIR LOKAÐAR ??? hvað á það að þýða ?? Við Kristín, Hjörtur og Silfá skelltum okkur á Music And Lyrics eða Et Sikket hit eða e-ð þannig í annað skiptið.. :P þau eru ekki með nýjustu myndirnar neitt....hehe...
En jæja vinna á morgun ég er dauðþreytt...
Myndir frá árshátíðinni eru komnar inn á mitt albúm
http://myndir.isak.is/v/Rutar-myndir/2007/denmark2007/
Ojj ég verð að segja ykkur eitt.
Þið vitið hvað ég var heppin með hinn Samsung símann minn sem fór í viðgerð og ég fékk helmingi ódýrari Samsung síma í staðinn og blabla... Ég var auðvitað búin að kaupa mér annan Samsung síma.
Í vélinni slökkti ég á honum og við lendingu í Danmörki kveiki ég á honum...... "phone locked"
Takk fyrir!
og Rut var orðin símalaus í Danmörkinni stóru!! Og nú er hann í endurræsingu í Tæknivörum sem kostar einhvern 5000 kall! Ég ætla selja þennan F****** Síma og kaupa mér e-ð allt annað en SAMSUNG!! DRASL!
Ásta var LIFESAVE-ER að lána mér símann sinn í Danmörku (hún var með tvo)
hún er æði!
hún á afmæli í dag....
Eigum við ekki að skála fyrir þér yfir Júróvisjón ???